Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

Ylja Store

Hita & kælipúði

Hita & kælipúði

Venjulegt verð 5,990 ISK
Venjulegt verð Söluverð 5,990 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir.

Hita og kælipúði 

Gefðu þér stund til að slaka á og njóta smá dekurs með þessum fallega hita og kælipúða. Púðinn er fylltur með leirkúlum og áklæðið er úr blöndu af hör og bómull.

Hægt er að hita púðann í örbylgjuofni og njóta þægilegs yljar við háls, mjóbak eða magaverki,  eða kæla hann í frysti og nota sem kælibakstur. Áklæðið er hægt að taka af og þvo.

Notkunarleiðbeiningar

Til hitunar:

  • Gakktu úr skugga um að örbylgjuofninn sé hreinn og að snúningsdiskurinn geti snúist óhindrað.
  • Leggðu púðann í örbylgjuofninn og dreifðu þyngd hans jafnt.
  • Hitaðu í 10 sekúndur í senn, að hámarki í 1 mínútu samtals. Athugaðu hitastigið og snúðu púðanum eftir hvert bil.
  • Bíddu í 20–30 sekúndur áður en þú notar púðann.

Til kælingar:
Settu púðann í lokaðan poka og geymdu í frysti í 2 klukkustundir fyrir notkun.

Stærð: l: 64cm, b: 15cm, h: 2cm.

Efni: Lífrænt hör, Lífræn bómull, Leirperlur.

Skoða allar upplýsingar