Ylja Store
Gjafabox | Dekur pakkinn
Gjafabox | Dekur pakkinn
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Dekurpakkinn 🤎
Gefðu einhverjum sem þér þykir vænt um notalega stund og smá dekur. Dekurpakkinn sameinar hlýju, umhirðu og ljúffengan mola, falleg gjöf fyrir þann sem á skilið að slaka aðeins á.
Í pakkanum er:
Hita & kælipúði frá Meraki – notalegur í slökunarstundinni. Púðinn er fylltur með leirkúlum og með áklæði úr hör og bómull sem má taka af og þvo. Hægt er að nota hann bæði heitan og kaldan samkvæmt notkunarleiðbeiningum. Stærð: 64 × 15 cm.
Handsápa og handáburður frá Meraki – fallegt Winter Whisp gjafasett fyrir daglega umhirðu og mjúkar hendur.
Christmas Mix karamellur frá Nicolas Vahé, ljúffeng blanda með appelsínu, jólaglöggs og súkkulaðibragði í fallegri öskju. 150 g.
Fallega pakkað í gjafaöskju og tilbúið til að gleðja. 🤎
